Tag Archives: Ný bók

Ný bók fyrir árið 2017

2017Hún er komin út og fæst m.a. í helstu bókabúðum Eymundsson, hjá Forlaginu á Granda, í Kirkjuhúsinu, á Heimkaup og á Basar Kristniboðssambandsins.
Auk þess má líka einfaldlega senda tölvupóst og fá bók eða bækur sendar beint frá útgefanda með póstinum.

Kápuljósmyndina tók Kristinn Ingi Pétursson upp í Mývatnssveit.

Bók fyrir árið 2016

Kápa Lykilord 2016Lykilorð 2016 er komin út. Þessi 11. íslenski árgangur þessarar tæplega 300 ára gömlu bókar inniheldur líkt og undirtitill bókarinnar segir: “Orð Guðs fyrir hvern dag”.

Kápuna prýðir að þessu sinni ljósmynd sem sr. Svavar A. Jónsson sóknarprestur í Akureyrarkirkju tók í Listigarðinum á Akureyri. Líkt og síðustu ár fylgja bæði bókamerki og póstkort með bókinni.

Lykilorð fást m.a. í Kirkjuhúsinu, í nokkrum söfnuðum, á Basar Kristniboðssambandsins og í ýmsum bókabúðum s.s. eins og í Eymundsson og hjá Forlaginu á Granda. Þá er hægt að panta bókina og fá hana senda heim, bæði beint frá okkur eða á heimkaup.is

Bók fyrir árið 2015

2015Lykilorð 2015 er komin út. Þessi 10. íslenski árgangur þessarar tæplega 300 ára gömlu bókar inniheldur líkt og undirtitill bókarinnar segir: “Orð Guðs fyrir hvern dag”.

Kápuna prýðir að þessu sinni ljósmynd Kristins Inga Péturssonar af stuðlabergi við Aldeyjarfoss í Bárðardal. Líkt og síðustu ár fylgir bókinni bókamerki með sama myndefni og Lykilorði ársins. Þá höfum við látið gera póstkort líka.

Bókin fæst í flestum verslunum Eymundsson, í verslun Forlagsins á Granda, í Kirkjuhúsinu, í ýmsum kirkjum og söfnuðum og víðar. Þá er hægt að panta bókina og fá hana senda heim, bæði beint frá okkur eða á heimkaup.is

Bók fyrir árið 2014

2014Lykilorð 2014 er komin út. Þessi 9. íslenski árgangur þessarar tæplega 300 ára gömlu bókar inniheldur líkt og undirtitill bókarinnar segir: “Orð Guðs fyrir hvern dag”.

Á þeim fáu árum sem bókin hefur komið út hér á landi hefur hún eignast dygga aðdáendur sem nota bókina daglega. Á meðan sumir lesa í einrúmi biblíuvers hvers dags og sálminn lesa aðrir saman í hóp, vinnufélagar á kaffistofunni, fjölskyldur við matarborðið. Margir láta þessa notkun á bókinni sjálfsagt duga á meðan aðrir fylgja lestraráætlununum sem eru í bókinni og fletta upp í Biblíunni til þess að lesa meira.

Þeir eru ótalmargir vitnisburðirnir um það hvernig fólk hefur upplifað Guð tala til sín í gegnum Lykilorð. Slík reynsla er eins og varða á leið mannsins í gegnum lífið. Með útgáfu á Lykilorðum vill Lífsmótun færa þeim sem vilja að Guð tali til þeirra, inn í líf þeirra, verkfæri í hendurnar sem er einfalt og þægilegt að nota.

Hægt er að nálgast Lykilorð 2014 í flestum bókabúðum landsins eða með því að senda nafn og heimilisfang í tölvupósti á postur@lykilord.is

Þeir sem eru á Fésbókinni geta gerst aðdáendur að Lykilorðum þar. Slóðin er einfaldlega http://facebook.com/lykilord