Um Lykilorð

ORÐ GUÐS FYRIR HVERN DAG …

Lykilorð er ein leið til þess að tengja Orð Guðs við daglegt líf okkar. Fyrir hvern dag ársins eru gefin tvö biblíuvers, og auk þess fylgir þeim sálmavers eða orð úr kristinni fortíð eða nútíð sem bæn eða til frekari íhugunar. Lykilorð geta verið fyrstu skrefin í þá átt að læra að þekkja breidd og dýpt Biblíunnar.

… Á MÖRGUM TUNGUMÁLUM

Lykilorð eru gefin út á u.þ.b. 60 tungumálum víðsvegar um heiminn. Þau tengja saman fólk úr ólíkum menningarheimum og mismunandi kirkjudeildum. Lykilorð styrkja og uppörva kristna, sérstaklega þó þar sem erfiðleikar herja að.

… Í NÆRRI 300 ÁR

Lykilorð hafa komið út á hverju ári síðan 1731, undantekningalaust, og á íslensku frá því árið 2006. Einföld framsetning gerir bókina aðgengilega fyrir ólíka einstaklinga óháð samfélagsgerð og menningarstraumum. Orð Guðs talar beint til fólks í mismunandi aðstæðum.

… OG NÚ LÍKA TIL ÞÍN

Lykilorð birtast ekki bara í bókar- og rafbókarformi heldur er þeim einnig dreift daglega sem hljóðvarp og á ýmsum samfélagsmiðlum. Þau eru gefin út á íslensku af sjálfseignarstofnun, Lífsmótun, sem hefur það að markmiði að styðja við og byggja upp þá sem vilja fylgja Jesú Kristi. Útgáfa Lykilorða er einn þáttur í þeirri viðleitni.