Óttast eigi því að ég er með þér, vertu ekki hræddur, því að ég er þinn Guð.
Jesaja 41.10
Hversu gott er að heyra þessi orð!
Á lífsins göngu stöndum við oft frammi fyrir aðstæðum þar sem við efumst um eigin getu og finnum að styrkur okkur er takmarkaður. Þá er gott að hafa styrka hönd við hlið sér og fá að heyra uppörvandi orð og stuðning þess sem hefur meiri styrk, meiri visku eða reynslu. Líkt og foreldri sem segir við barn sitt: Vertu ekki hrætt barnið mitt, ég er hér og styrkur minn er þinn. Máttug, huggandi og styrkjandi orð.
Enn betra er að heyra þau frá almáttugum Guði.
Guð segir þessi orð við fólk í margvíslegum aðstæðum, við einstaklinga jafnt sem heila þjóð. Orðin „óttast eigi því að ég er með þér, vertu ekki hræddur, því að ég er þinn Guð“ hljóma allt í gegnum Biblíuna. Ekki þarf að óttast orð Guðs, áætlun hans eða nærveru.
Lykilorð eru samansafn lifandi og kröftugra versa úr Orði Guðs, Biblíunni. Orð Guðs er máttarorð. Sami Guð og talaði við sköpun heimsins talar enn til okkar í gegnum orð sitt. Ráðsályktun Guðs mun ekkert geta stöðvað. Hans orð stendur stöðugt um eilífið.
Hversu gott er að fá að meðtaka þessi orð og láta þau verða sér til blessunar, uppörvunar og leiðréttingar. Megi þessi Lykilorð verða þér til lífs og blessunar og minna þig á að Guð er nálægur.
Sigríður Schram
Framkvæmdastjóri Kristniboðssambandsins
