Sale!

Náðargjafir andlegrar greiningar

Original price was: kr.2.900.Current price is: kr.2.400.

Rannsókn á trúarlegri kjölfestu í ljósi hlutverkakenningar Hjalmar Sundén.

Vigfús Ingvar Ingvarsson er guðfræðingur og fyrrum sóknarprestur á Egilsstöðum (Vallanesprestakall), þar sem hann er búsettur. Hann hefur aflað sér aukinnar menntunar og reynslu með námsdvölum vestanhafs og í Þýskalandi, með áherslu á praktíska guðfræði.
Bókin er ritgerð til MA við guðfræðideild Háskóla Íslands – skrifuð undir leiðsögn dr. Péturs Péturssonar prófessors og lokið haustið 2012.

Category: Tag:

Description

Trú er að finna allt frá óæðri kennd eða leit til djúprar
reynslu og formlegrar iðkunar í trúarsöfnuði.

Hvar og hvernig fær fólk trúarþörf sinni svalað? Hvernig mótast trú sem verður kjölfesta í lífi fólks og grunnur að stuðningi við trú og líf annarra? Er hægt að styðja við trúarmótun og jafnframt draga úr hættu á að trú geti orðið farvegur misréttis og jafnvel misnotkunar?
Þannig er spurt í þessari bók.

Þetta er fræðibók en flestir hlutar hennar eiga að vera öllum áhugasömum aðgengilegir. Áhersla er á líf og lífsreynslu fólks sem um er fjallað, sérstaklega á mótunartíma.

Lífsreynsla höfundar býr einnig að baki þessum skrifum og rannsóknum. Sérstaklega kynni hans og konu hans, Ástríðar Kristinsdóttur, af kyrrðarstarfi einkum andlegri fylgd.
Andleg fylgd (spiritual direction) byggir á fornri hefð á nýju blómaskeiði frá síðari hluta 20. aldar.

Ýmislegt af efninu er varla til annars staðar á íslensku enda víða leitað fanga. Það er m.a. hvatinn að útgáfu bókarinnar.