Drottinn mun dæma meðal lýðanna og skera úr málum margra þjóða. Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð og ekki skulu þær temja sér hernað framar.
Jesaja 2.4
Author Archives: Lykilorð
Lykilorð mánaðarins: október 2026
Til frelsis frelsaði Kristur okkur! Standið því stöðug og látið ekki aftur leggja á yður ánauðarok.
Galatabréfið 5.1
Lykilorð mánaðarins: september 2026
Betri er hnefafylli af ró en báðar hendur fullar af striti og eftirsókn eftir vindi.
Prédikarinn 4.6
Lykilorð mánaðarins: ágúst 2026
Ég er kominn til þess að þið hafið líf, líf í fyllstu gnægð.
Jóhannes 10.10
Lykilorð mánaðarins: júlí 2026
Réttvísi skal streyma fram sem vatn og réttlæti sem sírennandi lækur.
Amos 5.24
Lykilorð mánaðarins: júní 2026
Minnist bandingjanna sem væruð þið sambandingjar þeirra. Minnist þeirra er illt líða þar eð þið finnið til eins og þeir.
Hebreabréfið 13.3
Lykilorð mánaðarins: maí 2026
Þessi von er eins og akkeri fyrir sálina.
Hebreabréfið 6.19
Lykilorð mánaðarins: apríl 2026
Jesús segir við Tómas: “Þú trúir af því að þú hefur séð mig. Sælir eru þeir sem hafa ekki séð og trúa þó.”
Jóhannes 20.29
Lykilorð mánaðarins: mars 2026
Þá grét Jesús.
Jóhannes 11.35
Lykilorð mánaðarins: febrúar 2026
Síðan skaltu gleðjast yfir öllum þeim gæðum sem Drottinn, Guð þinn, hefur gefið þér og fjölskyldu þinni.
5. Mósebók 26.11
