Þú skalt standa upp fyrir hinum gráhærða og virða öldunga.
Þú skalt sýna Guði þínum lotningu. Ég er Drottinn.
3.Mósebók 19.32
Þú skalt standa upp fyrir hinum gráhærða og virða öldunga.
Þú skalt sýna Guði þínum lotningu. Ég er Drottinn.
3.Mósebók 19.32
Hvar sem þér komið í hús, þá segið fyrst: Friður sé með húsi þessu!
Lúkas 10.5
Fyrst þú segir það skal ég leggja netin.
Lúkas 5.5
Meir en vökumenn morgun, þráir sál mín Drottin.
Sálmarnir 130.6
Nú getum við enn betur treyst orði spámannanna.
Það er rétt af ykkur að gefa gaum að því eins og ljósi sem skín á myrkum stað
þangað til dagur ljómar og morgunstjarnan rennur upp í hjörtum ykkar.
2.Pétursbréf 1.19
Þar sem andi Drottins er, þar er frelsi.
2.Korintubréf 3.17
Drottinn segir:
Með ævarandi elsku hef ég elskað þig, fyrir því hef ég látið náð mína haldast við þig.
Jeremía 31.3
Hafið salt í sjálfum ykkur og haldið frið ykkar á milli!
Markús 9.50
Drottinn svaraði: „Ég mun sjálfur láta allan ljóma minn líða fram hjá þér og
ég mun hrópa nafnið Drottinn frammi fyrir þér. Ég vil líkna þeim sem ég vil líkna
og miskunna þeim sem ég vil miskunna.“
2.Mósebók 33.19
Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, hann kom mér til hjálpar.
2.Mósebók 15.2