Bók fyrir árið 2016

Kápa Lykilord 2016Lykilorð 2016 er komin út. Þessi 11. íslenski árgangur þessarar tæplega 300 ára gömlu bókar inniheldur líkt og undirtitill bókarinnar segir: “Orð Guðs fyrir hvern dag”.

Kápuna prýðir að þessu sinni ljósmynd sem sr. Svavar A. Jónsson sóknarprestur í Akureyrarkirkju tók í Listigarðinum á Akureyri. Líkt og síðustu ár fylgja bæði bókamerki og póstkort með bókinni.

Lykilorð fást m.a. í Kirkjuhúsinu, í nokkrum söfnuðum, á Basar Kristniboðssambandsins og í ýmsum bókabúðum s.s. eins og í Eymundsson og hjá Forlaginu á Granda. Þá er hægt að panta bókina og fá hana senda heim, bæði beint frá okkur eða á heimkaup.is